14janúar

Óréttlátt?

Af hverju þarf svona margt að vera óréttlátt og ásanngjarnt!
Ég var að horfa á kastljósið- sem by the way ég skammast mín ekkert fyrir enda horfi ég mjög sjadan á það, eeeeeeeen. Ég leit á imbann og sá Áslaugu og Snædísi í Kastljósinu og hugsaði vá hvað ég er heppin, en um leið hvað fólk er misjafnt!
Ég hef fengið tækifæri á því að kynnast þeim og mér finnst þær frábærar, ég var með lítinn hóp af blindum og sjónskertum ungmennum í jólakökubakstri fyrir ári eða tveim, þetta eru frábærar stelpur sem eiga frábæra að!
En þær þjáðst af ólæknanlegum sjúkdómi sem lýsir sér í sjónskerðingu, heyrnarleysi og dofnum líkamspörtum!
Þetta er svo ósanngjarnt, svo get ég látið einsog fífl og dæmt sjálfa mig fyrir að vera einsog ég er!
Ef þetta eru ekki stelpur sem gera manni ljóst hvað maður hefur þá veit ég ekki hvað!
Mig langaði bara að sega hvað þær eru frábærar.

Annað með neikvæðina!?
Ég ákvað að gera mér áramótaheit, það var ekki bara eitt sem kom til greina heldur svo margt að ætli ég verði ekki dauð fyrir árslok?
Að sjálfsögðu ætti maður ekki að vera deila með öðrum hvaða markmið maður leggur fyrir sig, en ég hef ákveðið að reyna bæta manneskjuna sem býr innra með mér!
Ég hef á nokkrum árum hrunið niður innra með mér, bara fyrir slysni. Þetta er eitt sem ég hef áttað mig á, að sumt þarf maður bara að hafa í stöðugri þjálfun, það er víst ekki nóg að hafa misst "þúsund" kíló og líta sæmilega út, heldur þarf manni víst að finnast maður líta vel út að innan líka?
tss... en sú vitleysa hugsaði ég í fyrstu en þetta reyndist vera staðreyndin! því miður, þannig nú hefst tiltekt í líkama Lindu;)    -(hljómar ekkert voðalega vel)-.

Annað efni í neikvæðni Lindu-
Strákar- Margar stelpur greina stráka=vesen. En þá hugsa ég vesen/vandamál eru til að leysa þau!
Ef ekki væru vandamál þá væri lífið of einfalt.
En af hverju þarf alltaf að vera vesen með stráka, ég segi þetta því ég er stelpa.
Ég er í sambandi, með strák að sjálfsögðu- hann heitir Hafþór fyrri þá sem ekki vita- eða fyrir þá stráka sem hafa einfaldlega ekki náð því að ég er á föstu!
Ég held ég leyni þessu ekkert lengu með það hvað ég er að reyna sega!
Ég var á áramótarballi í Vestmannaeyjum og var að dansa með vinum mínum. Kemur ekki einhver gaur og reynir að dansa við mig, og ég bið hann vingjarnlega um að hætta, og hann skilur það greinilega ekki, þannig ég geng í burtu og dansa annar staðar, og eftir stuttan tíma er hann kominn aftur, og ég segi honum að hætta, og þá sér félagi minn að hann er að bögg mig og ýtir honum frá, þá kemur þessi gaur tekur utan um og hvíslar í eyrað á mér- og það var svo sjúklegt og ógeðfellt að ég vissi ekki hvert ég ætlaði!
Takið þetta til ykkar sem eigið- strákar sem eru svona, það er ekki TÖFF! og ég er hvorki að monta mig né sega að ég sé eitthvað stolt af þessu en þá er þetta ekki í fyrsta sinn sem ég lendi í þessu og ég hef fengið mig FULL SADDA!
Það ætti að vera nóg að sega við strák "hey ég er á föstu, vil ekki". nei nei sumir bara vilja ekki ná því!
hehe og nú verð ég þekkt fyrir að vera stelpan sem vill ekki athygli!
Ágætt svona rétt meðan maður er í SAMBANDI!!!!!


En ég held ég hafi mig ekki í að skrifa meira!

og læt eina kaldhæðnislega mynd hér sem segir að athyglin sé til staðar!?






 
14. janúar 2008 klukkan 20:31
Linda Ósk Hilmarsdóttir
4 athugasemdir
28nóvember

Jóla whuuut...

Jæja já...þið viljið annað blogg ha?
Hvað af því ég geri svo stutt og laggóð eða?
Eimmitt!
Jæja ykkur hefnist fyrir!

Kallinn er búinn að vera hneykslast á mér að ég skuli vera næstum búin með jólainnkaupin, þá meina ég gjafirnar.
Næstum búin að baka með múttu og allt að verða ready, eina sem ég held í skefjum, er jólaskrautið.
Mér tókst nú samt að fá að setja það upp úti seinustu helgi, á bara eftir að kveikja:D víhí...
Ég hef nú aldrei verið neitt jólabarn. Langoftast verið með kvíða og liði illa bara:/ ekkert minn uppáhalds tími!
En eftir ég kynntist Haffa að þá hefur þetta allt snúist við og ég býð eftir jólunum þetta árið og seinasta!
Hvað er að?
Jæja.
Annars er svona allt sæmilegt að frétta af manni fyrir utan ýmis ónefnd mál einsog er alltaf hjá öllum.
Það er alveg ótrúlegt að maður geti ekki lifað lífi án vandræða,
hugsið ykkur hversu mikill lúxus það væri;)
hell yeah! En well fáum því víst ekki um ráðið!
En í vinnunni er ég búin að láta hópinn minn, litlu prakkarana gera jólagjafir, ótrúlega sniðugar krukkur með gler málningu, hver á ekki svoleiðis frá því síðan hann var lítill:) alltaf svo sætt og skemmtilegt, svo lét ég þau búa til pappír utan um það en ég klippti niður léreft efni og lét þau stimpla á þau með eplum, haha þvílík snilld! og svo ég nefni nú merki miðana, guuuð, ég vildi ég væri foreldri í þetta skipti;) ehhe.. segi svona!

En back from the christmas.
mín hefur ákveðið að skella sér í skóla eftir áramót, engan heilsdags bara svona nokkra áfanga í fjarnámi!
Ótrúlegt en satt þá er Linda Ósk Hilmarsdóttir farin að sakna þess að vera ekki að læra, en sjáum til þegar þetta fer að byrja!
haha god help me... kemur náttla ekki til greina að ég hætti í vinnunni minni þar sem það er það skemmtilegasta sem ég geri í vikunni!
plús það var reykjavíkurborg að gefa leikskólum launahækkun! haha ÉG VIÐURKENNI EKKI AÐ VERA HÁLAUNUÐ! HAHA...óneii...
Any ways, nú þar sem skólinn verður eftir áramót með vinnunni, þá hef ég ákveðið að fara í átak þar sem mér hefur sést kílóin seeetjast á alla staði á mínum líkama! og ég er nú barasta ekkert sátt við það miðað við hvað ég lagði hart á mig að missa ein tuttugu kíló hér ekki fyrir svo löngu;)
En svona er lífið ósanngjarnt í mörgu einsog þið öll vitið!
En til að sega frá fleiru en þá skellti ég mér á eplaballið í kvennó, Erik til mikillar óhamingju (greyjið er of gamall).
En jááá... fyrir utan óteljanlega busa á hæsta gelgjuskeiði, no affenc, nefnilega af því ég er bara átján...
en já, þá var þetta bara asskoti fínt ball enda var hann "vinur minn" að spilá; páll óskar...
oooh sem minnir mir á það að Beta systir er að fara á jólahlaðborð á föstudaginn einsog ég, nema þar verður Palli að DJ-ast...pff og ég er að fara á jógvan og friðrik ómar..víh! æj það verður fínt þar sem ég vinn með svo miklum rugludöllum sem koma stuðinu í gang!

En ég veit ekki hvað ég á að sega fleira nema, ég var svo dugleg að ég bakaði súkkulaðibitakökur í kvöld, og mömmukökur, og ætlaði svo að vera svo dugleg að sofan um ellefu leytið, en hvað segiði, ég er enn hérna er það ekki???
 og þar sem ég gat hreinlega EKKI sofnað þá skellti ég mér bara á fætur fann málarasettið mitt og málaði eina mynd:) I know sad, eeeen... og svo eftir það fór ég og skellti helli mörgum myndum inná mæspeisið mitt... og svona skemmtilegheit:D og nú eftir að ég hef talað við alla sem ég mögulega hef getað- á msn. Þá hef ég ákveðið að fara að sofa!

So I´m off...
Bæjó honís:*


l1Nov 24, 2007
Linda in different ways;)

28. nóvember 2007 klukkan 01:49
Linda Ósk Hilmarsdóttir
Almennt
3 athugasemdir
10október

Djúpt hugsi!

Jæja nú hefur mín tekið sig saman í andlitinu og ákveðið að blogga en það er ansi margt sem hefur gerst á stuttum tíma hjá minni...
Sárt að sega en þá kvaddi vinkona mín þennan heim um daginn. Það var afskaplega sárt að þurfa fá þær fréttir á miðjum vinnudegi og þurfa virkilega að klára hann með svona mikla sorg inní sér!
En það hljóta nú allir að skilja þetta. En þetta er sko alls ekkert mál, og aðalega ekki þegar maður býst síst við þessu og þegar svona ungt fólk kveður svona snökkt. En sumum líður bara ekki vel.
Ég veit að maður ætti ekki að læra af neinni reynslu tengdri dauðanum, en að sjálfsögðu kemst maður að ýmsu.
Einsog því hversu marga maður á að.
En ég vil bara senda mína hlýju og samúð til hennar Önnu og fjölskyldu. ÞVí þetta hefur reynst okkur öllum erfitt!
Ég er líka bara svo sár, því það var svo margt sem maður hafði ósagt og að fá svona fréttir og hafa svona margt sem á gjartanu lág, að  já... Ekkert sérlega góð tilfinning. En ég fór í eina fallegustu jarðaför sem ég hef farið í, og tónlistin og orðin fengu mann svo sannarlega til að þarfnast faðmlags. En þetta var erfitt einsog maður bjóst við!
En svona er lífið! óbreytanlegt!

En einsog presturinn sagði, maður lifir bara einn dag í einu, og maður veit aldrei hvað gerist næsta dag!

En einsog sönn íslensk harðjaxla kona bít ég á jaxlinn og reyni að halda mínu striki áfram að ganga beina leið inní skónandi verölf og reyni að taka réttar ákvarðanir og lifa mínu lífi!
Kannski maður fari úr öðru í annað, en ég fór í 50 afmæli hjá henni Láru minni, sem er að vinna á gulu deildinni, en ég dró kallinn minn með og fór hann á köstum á dansgólfinu með kellunum mínum, haha svo fékk maður að heyra það næsta dag að það færi sko illa fyrir peyjanum ef hann myndi hætta með mér því þá myndi hún Beta hofgyðja spjalla við móðurina! haha, fyndið:)
En já, svaka stuð á laugardaskvöldið! haha hofgyðjur seinastar út, DJ-inn var að verða súperbrjál, "eitt lag enn..." og já við erum þessar týpur! haha
En svona er að vinna á hofi og hafa mikla skemmtanaþörf!
Þær eru yndi þessar skvísur:)

En ætli ég hafi það nokkuð lengra vil bara votta þeim samúð á þessum degi sem munu minnast þeirra sem hafa framið sjálfsvíg!

Vitna í frétt á mbl!:

Fréttamynd 442534
Fórnarlamba sjálfsvíga minnst

Minningarstund var í Hallgrímskirkju í Reykjavík í kvöld þar sem minnst var fórnarlamba sjálfsvíga. Að athöfninni í kirkjunni lokinni var gengið niður að Reykjavíkurtjörn þar sem kertafleyting fer fram. Minningarstundin er haldin í tilefni af því að Geðverndardagurinn er í dag.

________________________

En jæja nú kveð ég með tilhlökkun í átján ára afmælið mitt sem er sem betur fer á laugardegi!
13 október!
kiddaoglinda
Frá afmælinu hennar Emmu!


Fallegi bíllinn minn sem ég sakna...

10. október 2007 klukkan 23:33
Linda Ósk Hilmarsdóttir
2 athugasemdir
27júlí

Upprifjun on a sunny day

Obbabobb, hvar hef ég verið?
Annars vegar utan átta hér og þar, meira þar, en samt einhvernvegin all staðar;)!?
Eða hvað, mín búin að vera einhvað týnd undanfarið!?
Jæja hér er ég alla vega, hress að vanda! Stutt síðan ég var í capitalinni, nú svona þar sem maður býr út AF landinu þarf maður víst stundum að heimsækja heimalandið;)
hehe, skellti mér uppá land á......nei bíðið nú, ég átti að vakna snemma á laugardagsmorgninum og mæta í herjólf klukkan átta, en þar sem ég heiti Linda Ósk og er alveg yndislega mikill snillingur ákvað ég ð skella mér á djammið á föstudagskvöldinu með henni Emmu minni sem er svo ekki frá sögu færandi, annað heldur en ég man eftir mér að fara inná lundann, man eftir því að hafa fengið frítt á barinn, gekk út með Birnu Dögg, skellti mér á rúntinn með Gauja bróður, hahahahahah....(later) og kom svo heim og vaknaði við það að haffi var að reyna sega mér blíðlega frá því að ég hafði misst af herjólfi, ehemm...já vitiði, ég SNAPPAAAAAAAAAAAAAAAAAAÐIIIIIIIIIIIIII.....
En þar sem ég á elskulegasta kærasta í geymi, pantaði hann flug fyrir okkur bæði útá bakka, tók bílaleigubíl, skutlaði mér til rvk og fór svo í jólfinn seinna um daginn! ehemm..það eru nú ekki allir sem myndu gera þetta fyrir mig! oooo nei!
En ég komst að leiðarenda á endanum, skellti mér í kringluna að hitta hana Hrönn mína sem hafði svo mikið að segja, og hefu enn, en það er allt í lagi þar sem það er að koma ÞJÓÐHÁTÍÐ!. En já eftir labb í kringlunni hvaddi ég kallinn og hélt leið minni heim á langholtsveginn, fór svo í afmæli til Biddu minnar um kvöldið, því erindi mitt til reykjavíkur var einungis að komast til hennar heittelskuðu Biddu minnar! haha...jæja kvöldið var frábært einsog kannski sést hér?:

dh
Dagný og Hekla

iris
Íris átvagl!!

l
og ég, því fyrir ykkur sem ekki vissu "elska ég tær"!

tara
Og Tara missti sig aðeins!

bd
Hérna er svo afmælisbarnið sjálft, sem einnig fékk bílpróf,...
Að miðnætti var haldið niðrá löggustöð og fengið sér bílpróf;) ahah bara einsog að skella sér á bæjarins bestu að fá sér pulsu;) ójá!
En það fyndna var að ljóskan sem ætlaði að senda bílprófið hennar Biddu niðrá stöð hafði gleymt því þannig ég, Bidda og fleiri misstu sig aðeins í örvæntingu, get alla vega viðurkennt ð ég sá hana fyrir mér labba út ökuréttindalaus!
En ekki var sagan sú!
Bidda fékk prófið og þá var keyrt heim og skellt sér á rúntinn með gellunum!
Ójá, hehemm...En svona er lífið eins æðislegt og það er! haha....

Jæja ætli maður láti þetta blogg ekki vera orðið nógu langt,
þannig við heyrumst vonandi fljótt aftur;)? eða hvað...þjóðhátíð í vændum, ehemm..fer allt eftir ástandinu!




ps: Var að kaupa mér bíl;)
eða ég og Haffi vorum að kaupa okkur bíl:)
og hann er sko rauður;) haha my favorite:)

moi
Ójá, mín er sko farin að spranga, hahahahahah djóóóóók;)
27. júlí 2007 klukkan 15:36
Linda Ósk Hilmarsdóttir
Engin athugasemd
18júní

Eins gott mér leiđist ekki oftar!? haha...

Góðan daginn, ég sit hérna heima því ég er lasin- eimmitt ég hata þannig hluti því þá verður maður að sleppa vinnuog þar af leiðandi fær maður ekki peninga, eins ömurlegt og það er!
Alla vega, þar sem ég sit heima veik hér ein, þá ákvað ég að skella mér á fréttirMBL og fann hér eina hlægilega!
Sem að vísu kom mér á óvart, því ég og kirkjulegt dæmi er ekki það sama!
Enjoy=

Í prédikun í dómkirkjunni sem var útvarpað fyrir hádegi varaði sr. Hjálmar Jónsson þjóðina við því að ofmetnast af velgengni sinni og sagði síðan orðrétt:

„... eða eins og nýi sjúklingurinn sem var sestur í afturhallandi stólinn hjá geðlækninum og læknirinn sagði: Ég þekki ekki þín vandamál þannig að það væri best að þú byrjaðir alveg á byrjuninni að segja mér hvað væri til erfiðleika í þínu lífi. Það er sjálfsagt, sagði sjúklingurinn, Þetta byrjaði allt með því að í upphafi skapaði ég himin og jörð.”   

Og það var hlegið í kirkjunni.


haha eimmitt það sem ég var að tala um, jæja læt ykkur vita ef ég finn fleira:D

18. júní 2007 klukkan 12:01
Linda Ósk Hilmarsdóttir
4 athugasemdir
14júní

...I hope u'll be having the time of your life, but think twice that's my only advice!...

Góðan dag peps, long tiiiiiiime...ójá, margt búið að gerast, sumt kannski sem maður ætti ekkert að vera ræða hér á svona opinberum stað! hehe, fólk var eimmitt að tala um það í vinnunni minni að netið er ansi víðbreytt- það eru næstum því ALLIR með internetið- og þar af leiðandi gæti amma mín verið að lesa bloggið mitt í leynd! haha, ekki það að ég hafi samband við hana- tek það fram!
ANY WAYS: man ekki hvort ég minntist á það í síðasta bloggi að ég væri komin með vinnu á veitinastað hér í eyjum plús það að ég væri nú búsett á eyjunni! Ótrúlegt að fólk skuli enn spurja, "ertu alltaf hérna?" haha uuuh, hugsanlega? Eg bý hér í augnblikinu!
En fréttir færandi af mér! Alltaf gaman að frétta eikkvað af vitleysunni minni!
Jæja ég alla vega fíla mig alveg hérna, hvorki slæmt né brjálað stuð, bara lítil streyta og fínt fólk!
Eygló, ég og Emma skelltum okkur á rúnt fyrir ekki svo löngu, rétt eftir að Eydlóin mín var nýkomin heim frá NEW YORK bastarðurinn! alla vega og við gjörsamlega misstum okkur á rúntinum í töffara stælum haha enda hélt fólk við værum á einhverju! uuu...Annað sem hefur gerst er að ég og haffi átum árs afmæli 20 maí, man ekki heldur hvort ég hafði minnst eikkvað á það

Hér erum við:) tíhíhí...
En jám, annað sem hefur komið fyrir á líðandi tímum, ég og Haffi og Dísa og Fannar skelltum okkur út einn sólardaginn nú á dögunum, og okkur Dísu langaði svo ÓTRÚLEGA að skella okkur í rólu! haha þannig við fórum á leikskóla og skemmtum okkur konunglega! Ég meina alltaf gott að yngja sig örlítið upp sama á hvða hátt! haha


haffi og fannar

Þetta var sko fjör haha, mmmh...hugs hugs, fleira sem mér hefur tekist að lifa af síðastliðna daga...jájájá elskan mín:D
Ég fór til reykjavíkur í byrjun júní...fáranlega gaman, by the way KEYPTI MÉR NÝJAN SÍMA! ahha, það voru allir byrjaðir að gera svo mikið grín af símanum mínum;( og ekki bara það heldur væla yfir því að það væri ekki hægt að hringja í mig, heeehmm,., hringji þið eikkvað frekar núna e'ða?
Pfff...

Ég passaði líka fyrir minn elskulega bróður og tókst að fara í barna afmæli hjá litlu stelpunni minni sem er orðin FIMM ára!!!!!!! AAAAAAAAaaaaaaaaahh ég fékk vægt taugaáfall þegar ég áttaði mig á því að litla barnið mitt innan gæsalappa hehe er orðin fimm ára! dúdda mía!
lsir
ég og litla stelpan mín:-) ammlisbaddnið:*
En já ekki má gleyma því að mér tókst líka að skella mér á smá djamm með litlu sætu súkkulaði rjóma tertu bangsanum mínum henni Silvíu:)...

En jæja segum þetta gott ætla fara vinna í því að setja inn nýjar myndir svona áður en ég skelli mér til vinnu aftur, þannig bæjó hottie people:*

14. júní 2007 klukkan 17:12
Linda Ósk Hilmarsdóttir
Engin athugasemd
17maí

Gúden Aben!

Hellú mitt góða fólk, ég hef fréttir!
Seinustu helgi voru HRAFNAKLETTAR í eyjum, plús það í fyrsta skipti tókst okkur Haffa að djamma í sitt hvoru lagi að hluta til;) haha, ég fór með Emmslunni minni, Maríu og Gústa baby á hrafnakletta þar sem ég hömpaðist á henni Birnu Dögg minni, en þetta var svo fáranlega gaman, síðan var Dabbi frændi hans Haffa eikkvað að reyna tkaa völdin af mér- var víst aðeins í já...HAHA ræðum það ekkert nánar, en talandi um þetta kvöld þá einnig var júróvísjón þá, og við hittumst nokkur heima hjá Fanney og grilluðum og horfðum á sjónpið fáranlega gaman, haha þar sem Þórdís mín staupiði ópal og jelly ..

til skiptis, og Fanney greyjið að staupa Baccardi RAZZ dry haha...litlu lúðar:D en jám, eftir ágætt kvöld þar..mmmh ótrúlega góðan mat:)- sem strákarnir okkar áttu heiðurinn af-

Einar Kristinn, Hafliði, Raggi og Haffi:)

Síðan þegar júróvísjón+maturinn var yfirstaðið var partý og allir skemmtu sér konunglega...-

Jelly skotin fóru síðan að sega til sín-...


Líkt og þessir tveir sem voru komnir í annarlegt ástand eftir ÖLL jelly skotin sem þeir tóku! haha...

Þetta var nú meiri snilldin þarna um kvöldið- haha en ég endaði heima, heil að húfi sama hvað aðrir sega...

Sæta fólk...meow, haha...

17. maí 2007 klukkan 13:44
Linda Ósk Hilmarsdóttir
3 athugasemdir
30apríl

vöknuđ og komin á ról í öđru húsi?

eyjar
Jæja, hvað er þá að frétta af þessu liði?
Maður spyr sig eflaust daglega...
Ég er í eyjum og veit ekki hvenær ég kem heim!
Flest fólkið mitt ekki sátt með ákvörðunina mína, en einsog maður spyr sjálfnan sif svo oft, hvað gerir maður ekki fyrir þá sem maður elskar mest?
En jám get varla þrætt fyrir þetta meira, alla vega er ég komin til eyja, peningalaus, og inneignarlaus! hha...í leit að vinnu!?
How SAD?
En jæja, ég veit ekki hvað meira ég get sagt, ætlaði bara að tilkynna ykkur ferð mína!
haha...
Kannski það komi eikkvað meira frá mér á næstunni hérna, vonum það alla vega!
En eitt skilyrðu sem mér var sett svo ég fengi að flytja!
Ég er að koma til reykjavíkur flest allar helgar býst ég við!
hehe síðan verði þið bara að vera dugleg við ða koma til eyja að djamma með mér;) tíhíhí...
En I´m off nenni ekki að skrifa á þessu lyklaborði:S

eggin.tk
I miss you guys:*

rjomarassar
Miss you guys toooo:*:*...

eggin.tk
rjomarassar.bloggar.is
*
Kveð að sinni, boj:*



30. apríl 2007 klukkan 11:53
Linda Ósk Hilmarsdóttir
Engin athugasemd
01apríl

fyrirgefđu mér..


hrlis
Góða kvöldið gott fólk, jæja stór helgi liðin hjá, og maður varð varla var við að hún kom!
Fimmtudagurinn fór í djamm, eins sorglegt og það hljómar, en þá var haldin Árshátið MK-inga og var hún auðvitað tekin með trompi þar sem fröken Linda missti af seinustu árshátið, eða já ræðum það ekkert nánar.
En fimmtudagurinn minn byrjaði að vanda með vinnudag kl níu að morgni sem lauk um fimm leytið, eftir það fór ég með tölvuna mína loksins í viðgerð og gaman að sega frá því e afgreiðslumaðurinn reyndi að sega mér einhverja leið sem ég nánast skyldi ekki baun í, han hafði alveg eins getað talað kínversku þetta var svo fjarri mér1
Þannig hann gafst uppá því að reyna tjá mér og múttu um að fara einhverjar flýtileiðir í stað þess að fara með hana uppí opin kerfi, láta hlægja af okkur og borga 12 þús fyrir viðgerð! haha þannig hann tók tölvuna í fangið ýtti á nokkra takka og sagði okkur að biða í átta mín.
Talvan komin í lag!
ÓTRÚLEGT!
Þetta hefði tekið árið hefði ég reynt þetta sjálf! haha...
En eftir þetta bras for ég heim tók til draslið mitt og fór siðan til Birnu Daggar þar sem fjörið byrjaði- Silvía sæta eldaði handa okkur geðveikt góða kjúkling, en við tvær ákváðum að fermas aftur og sjá um fermingarveisluna sjálfar- elda bara! hehe...hæfæf!
en já eftir góðan mat var byrjað að tjútta og tralla þar sem fólk gerði ýmislegt. Haffi kíkti í heimsókn til að kveðja mig að lokum þar sem hann fór til Bene um nóttina!
En eftir að hafa hangið þarna á tjúttinu hjá Birnu í þó nokkurn tíma skelltum við okkur loksins á ballið þar sem MARGT gerðist...
En mestu máli skiptir er að allir voru með rænu, eða alla vega flestir!
ÉG...
og við skemmtum okkur allar mjög vel!
Sumar enduðu uppá borði *hósthóst* að dansa by he way..HAHA!
ææ...Síðan þegar líða tók á kvöldið og tærnar orðnar vel þreyttar (haha) var kjellunum skutlað heim af Birnu driver, en á leiðinni hringdi mín í Haffa til að fá svona one last kveðjustund, þá var maðurinn bara á runtinum með henni Emmu, þannig hann kom til mín og é kvaddi hann þessar 3 mín sem við höfðum hehe...og síðan fór hann bara...og ég sofnaði og man ekki meir.
Nema föstudagurinn fór í vinnu og um kvöldið kítki ég á smá rúnt síðan uppí hfj.
Fór síðan bara snemma að sofa...laugardagurinn fór í að passa Darra Dag- kíkti í kringluna með Emmu mini, fórum síðan heim og tók til og síða kítki Emma til mín svo ég gæti gert hana fína fyrir staffadjammið sem endaði víst ekkert alltof vel hjá henni greyjið mitt:p hehe...En nú er Sunnudagur og er ég búin að vera gera ekki neitt, bakaði pönnsur handa gamla settinu, síðan kom Dabbi bró og Himmi og átu afganginn! haha...matákarnir:P
En nú hef ég hugsað mér að fara upp og láta settið bjóða mér uppá eina feita stóra og glóðheita Dominos pizzu, ójááá... og ískalda kók:P mmmmh...
Þannig, ég heyri í ykkur seinna og vonandi hafi þið átt skemmtilegri  helgi, mín var kannski einum of róleg! hehe...
Mín er þá bara farin;)1!!


Birna Dögg, Silvía, ég, Brynja og Hrönn- djamm píurnar þennan fimmtudaginn! haha...
01. apríl 2007 klukkan 19:03
Linda Ósk Hilmarsdóttir
Engin athugasemd
18febrúar

Breytingar í lífi Lindu litlu?




Feb 17, 2007
blackn
                                                       mín orðin svo sterk af allri rætkinni...

Góóóóðan dag góðir Ísledingar, alla vega byrjum á eurovision forkeppninni sem var í gær og þar sem ráðið var um úslit og hver yrði svo heppinn að skella sér til Finnlands (bið að heilsa Hjalta baby) haha, annars Eiríkur Haukson frændi minn með meiru hefði nú bara átt að halda sig við NEI-ið og sleppa þessari blessuðu keppni þar sem hann er out of the map! og l´ka fyrir svona lööngu síðan, pff..draslið, meira draslið. Alla vega ég hefði viljað fá að sjá Jónsa hottie eða Friðrik Ómar, meow hvað Friðrik Ómar er hot! Ég og hún Sibba mín á Hofi erum heitar fyrir honum, hahaha..
Fleira í fréttum, í vikunni fór ég og sá myndina Alfadog, myndin með Justin Timberlake, helv. góð mynd, enda hringdi ég strax í kæro og bað hann um að dl henni! tíhíhíhí..
Talandi um kæró, svona kannski svo að allir fái að vita það e þá er ég Linda Ósk Hilmarsdóttir að flytja úr landi í sumar! Mín bara ætlar að flýja land einsog móðirin kaus að nefna þetta, ákveðnar ástæður eru fyrir því en aðalega bara prófa einhvað nýtt! Orðin þreytt á öllu þessu venjulega, ekkert gaman lengur, en ég mun nú samt láta sjá mig hérna um helgar og þegar við gefst tími til að skella sér til reykjavíkurinnar! Hin mikla Capitalin! haha, en jújú, svona er nú lífið einsog ég hef svo marg oft sagt áður.
En stefnan mín þessa vikuna er að reyna komast í ræktina til að byrja með, skella mér á þessa blessuðu fundi sem bíða mín á þriðjudaginn. Reyna taka upp böndin hjá gömlum vinum,, borða að vísu, eignast peninga, skemmta mér og reyna hugsa um það hvernig í andskotanum ég fæ orðaforðann minn aftur. Ég er ekki að reyna vera töff en eftir að ég hef unnið svona mikið á leikskólanum þá er orðaforðinn minn í hakki, haha farin að mismæla mig einsog ég fai borgað fyrir það, þannig... komin með svona byrjanda barnamál. tehhehe... En já helgin mín fór þannig fram að á föstudaginn chilaði ég með Heklu og Biddu heima hjá mer að gera EKKI NEITT. hahaha... og síðan "grét" ég mig í svefn yfir því að Haffi væri í eyjum að vinna inn peninga, pff.. ekki í rvk hjá mér:( Laugardagurinn átti að byrja með ræktinni en þar sem ég er þekkt fyrir að vera letibykkja stóðst ég ekki mátið og hékk heima þann daginn. En kvöldið breyttist þar sem Sandra Rós bauð mér í partý og var fyrst smá chilly heima hjá mér og síðan skelltum við okkur upí hfj að hætti Eydsíar Evu rúsínu sem var svo góóoð og alltaf jafn æðisleg og skutlaði okkur! (Takk fyrir það aftur).
Siðan eftir að hafa striplast um í þessu partyi og haft gaman með sick tónlist og læti, og ja jafnvel skemmtilegheitum hjá ýmsum aðilum, ónefndum þá var vinnu Hrannar minnar lokið og bauðst hún til að sækja góðvinkonu sina í ágætu ástandi lengst uppí hafnarfirði! Ehemm.. Hrönn mín, u know I love u mest!:*
E já ´siðan dagurinn i dag, sunnudagurinn hefur farið í það að liggja yfir sjónvarpinu, í tölvunni, sofandi og éta bolur og borða óholustu enda kemur það allt uan á mig eftir helgina, "JESSH!". e hverjum er ekki sama.?
En hérna ég er farin að hitta sæta strákinn han Jökul minn sem by the way var að eignast systur og hefur hún nú verið skýrð Lena Gunnarsdottir!
án efa sæt einsog þau systkinin:D hehe
En ég er farin ...
Kveð að lokum Linda outy!

greeneyes

I'll be watching you
18. febrúar 2007 klukkan 17:44
Linda Ósk Hilmarsdóttir
1 athugasemd

Today isn´t tomorrow...

Today you could be someone, tomorrow you could be me, but the next day after today, tomorrow you could be dead!

Auglýsing

Linda litla?

  • Nafn: Linda Ósk Hilmarsdóttir
  • Netfang: lindao89@hotmail.com
  • Stađur: reykjavík
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Vinn á leikskóla.
  • Hjúskaparstađa: In luuv...
  • Um mig: Tryllt reykvísk stelpa sem elskar ađ hafa gaman af lífinu! Tónlist skiptir miklu fyrir mér! COlDplAY! 18 ára, dökkhćrđ, grćn augu, 1,65 á hćđ!
  • Annađ: orđ tengdó: Ţú hlýtur ađ hafa veriđ sjómađur sem drukknađi, og var étinn upp af fuglum! Sko í fyrralífi! Emhemm,...

Innskráningar kubbur